Thursday, December 13, 2007

Brúin 16. desember - Jólastund

Halló!

Bráðum koma jólin. Þess vegna ætlar Brúin að heimsækja jólaþorpið í Hafnarfirði á sunnudaginn. Við ætlum að hittast í Hinu Húsinu kl 15 og fara saman í jólaþorpið. Þar er útimarkaður þar sem hægt er að kaupa ýmislegt í jólagjafir. Þegar við erum búin að skoða jólaþorpið ætlum við aftur í Hitt Húsið og borða piparkökur, drekka heitt súkkulaði, hlusta á jólatónlist og spjalla saman.

Sjáumst á sunnudaginn!

Brúin

---

Hi!

Soon it will be Christmas. Therefore we will visit the Christmas village in Hafnarfjörður on Sunday. We'll meet at Hitt Húsið at 3 p.m. and go together to the Christmas village. There is an outdoor market where you can buy different kinds of things for Christmas presents. After visiting the Christmas village we'll go back to Hitt Húsið to have some cookies and hot chocolate, listen to Christmas songs, chat and have a nice time.

See you on Sunday!

The Bridge

No comments: